Sunday, May 25, 2003

Sæl.
Loksins er ég búin að ljúka lokaverkefni mínu. Nú get ég farið út í sólskinið og notið sumarsins.
Þetta námskeið hefur verið mjög skemmtilegt og hef ég lært mikið á ýmiss tölvuforrit í vetur. Þetta námskeið hefur opnað dyr að nýjum heimi þar sem ég sé óteljandi möguleika fyrir kennara.
Ég hef einnig kynnst mjög skemmtilegu og hæfileikaríku fólki á námskeiðinu og þakka kærlega fyrir ánægjulegar samverustundir. Vonandi eigum við eftir að kynnast betur í framtíðinni og hugsanlega vinna eitthvað saman.
Ég þakka fyrir mig.
Kær kveðja, Guðrún.

Wednesday, May 14, 2003

Sæl.
Ég er búin í prófum og byrjuð að vinna að lokaverkefni mínu. Ég hef verið dugleg í dag að laga vefinn og ætla að ljúka við verkefni nemenda á morgun. Ég næ ekki að ljúka vefnum á réttum tíma, en ætla að reyna að komast mjög langt fyrir vikulok. Ég er að fara til Englands um næstu hlegi og tek mér því frí frá laugardegi til þriðjudags. Ég stefni að því að ljúka námskeiðinu í lok næstu viku.
Kveðja, Guðrún

Wednesday, May 07, 2003

Sæl
Í dag hef ég setið við tölvuna og unnið að vefnum mínum. Nú er lokaverkefnið að fá einhverja heildarmynd. Ég er í miðjum prófum en ákvað að hvíla mig í dag í próflestir og vinna vefinn. Nú annars er lítið að frétta. Ég tel niður dagana og er farin að hlakka mikið til að komast í sumarfrí. Reyndar byrjaði ég á sumarnámskeiði um síðustu helgi í námskrágerð. Ég held að það verði skemmtilegt námskeið. Það voru góðar umræður og vangaveltur í staðbundnu lotunni og lofar áframhaldið góðu.
Kveð að sinni, Guðrún.

Tuesday, April 29, 2003

Sæl
Enn settist ég fyrir framan tölvuna í stað þess að lesa undir próf og bætti við verkefni mitt um Tölvuforrit í stærðfræðikennslu. Viðbótin er bakgrunnur vefsins. Hér reyni ég að fjalla um þær kenningar sem liggja að baki tölvuforrita sem finna má í dag á Netinu og ætla ég síðan að fara að búa til verkefni. Sjálf er ég hrifin að samvinnunámi, því verð ég með einhvern vefleiðangur, en einnig ætla ég að venda á góða vefi eins og verf Freudenthalstofnunnar og bandarísku stærðfræðikennarasamtakanna NCTM. Einnig hef ég reynsu af að kenna í anda hugsmiðakenningar og er mjög gaman að vinna með þrautalausnir í hópvinnu. Það er hægt að gera skemmtileg verkefni með nemendum þar sem stuðst er við góða kennsluvefi. Ég hlakka mikið til að geta byrjað á verkefnunum og er alltaf að hugsa um og skipuleggja verkefni. En nú verð ég að fara að læra fyrir próf.
Kveð að sinni, Guðrún.

Saturday, April 26, 2003

Sæl
Ég hef setið yfir tölvunni í dag og byrjað að vinna í lokaverkefni mínu. Hér má finna það sem ég hef verið að fást við í dag Tölvuforrit í stærðfræðikennslu.
Næstu viku mun ég að öllum líkindum ekki vinna meira í vefnum, en ef ég finn stund milli próflesturs mun ég reyna að gera meira. Ég er að fá skýrari mynd af því hvernig vefurinn kemur til með að vera. Í kaflanum bakgrunnur ætla ég að vera með hugmyndafræði námsefnisins og fjalla um hugsmíðikenningar og tölvustutt samvinnunám. Verkefnin verða 7 - 9 og verða jafnframt kennsluleiðbeiningar til kennara með hverju verkefni.
Þetta eru hugmyndirnar í grófum dráttum, en sjálfsagt á verkefnið eftir að breytast þegar ég fer að vinna í því af fullum þunga.
Það er því skemmtilegur tími framundan.
Kveðja, Guðrún.

Thursday, April 24, 2003

Gleðilegt sumar
Þá er veturinn liðinn og sumarið komið. Mikið hlakka ég til að komast í sumarfrí. Nú um næstu hlegi ætla ég að fara að vinna í lokaverkefninu. Ég er aðeins byrjuð að setja upp vefinn og ætla að hafa svipað form á honum og nýjustu síðunum mínum. Það gerir alla vinnu auðveldari.
Annars sit ég yfir stærðfræðigreiningu alla daga og eftir helgi byrja ég að undirbúa mig undir 4 tíma próf í megindlegri aðferðarfræði.
Kveð að sinni, Guðrún.

Tuesday, April 22, 2003

Sæl
Þá eru páskarnir búnir og framundan vinnutörn. Ég hef lítið unnið að vefsíðugerð um páskana. Ég fékk flensu og er ekki enn búin að ná mér. Nú þarf ég að fara að snúa mér að náminu aftur.
Ég hef verið að hugsa um vefinn og er búin að sjá hann fyrir mér. Þá er bara að setjast niður og koma hugmyndunum á skipulagt form.
Kveð að sinni, Guðrún.